Lifað með sjónskerðingu

Þriðjudaginn 20. október kl 20:10 verður sýnd á RUV íslensk heimildarmynd frá 2014 þar sem fylgst er með sex blindum og sjónskertum einstaklingum á öllum aldri í sínu daglega lífi og hvernig þeir takast á við sjónmissinn með ólíkum hætti. Myndin var gerð af frumkvæði Blindrafélagsins og með stuðningi Blindravinafélags Íslands. Verkefnastjóri var  Kristinn Halldór Einarsson og dagskrárgerð var í höndum Söndru Helgadóttur.