Jólakost Blindrafélagsins 2012.

Kærleikur á jólum. Jólakort Blindrafélagsins 2012Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa jólakort félagsins tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

Jólakortin og merkispjöldin eru með myndinni „Kærleikur á jólum“ eftir listamanninn Helmu Þorsteinsdóttur en hún vann myndina sérstaklega fyrir félagið og gaf til birtingar á kortunum.

  • Jólakortin eru seld 8 saman í pakka ásamt umslögum á 1.400 kr.
  • Merkispjöldin eru 8 saman í pakka og eru seld á 400 kr.

Hægt er að kaupa kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, sími 525 0000 eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is.

Einnig verður hægt að kaupa rafræn jólakort með sömu mynd á heimasíðu félagsins www.blind.is  Þar geta kaupendur sett sinn eigin texta á jólakortið sem þeir fá síðan sent til sín í tölvupósti á tilbúnu PDF skjali.

Blindrafélagið hvetur alla velunnara sína að styðja félagið með kaupum á þessum fallegu jólakortum og merkispjöldum.

Blindrafélagið hefur einnig notið góðs af velvild fyrritækja sem keypt hafa jólakort féalgsins. Hér má sjá kynningu á jólakortasölu Blindrafélagsins til fyrirtækja.