Kl. 11.00 stígur á stokk Gerður G Bjarklind útvarpskona.
Að loknu erindi Gerðar gefst gestum Opna hússins tóm til fyrirspurna.
Um kl. 12.00 verður borið fram kalt hangikjöt með öllu tilheyrandi og kostar máltíðin aðeins 1000 kr.
Að loknum hádegisverði mætir svo hljómsveitin Baggalútur. Þeir munu sjá um að koma öllum í jólaskap sem ætti að endast fram yfir þrettándann.
Allir eru velkomnir
Skráning er á skrifstofu Blindrafélagsins og síðasti skráningardagur er þriðjudaginn 13. desember. Sími skrifstofunnar er 525-0000, einnig má skrá sig á netfanginu steinunn@blind.is
Mætum nú sem flest og undirbúum jólin með því að hlýða á Gerði G Bjarklind og njóta jólatónlistar að hætti Baggalúta.