Níundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út.
Þættinum stjórnar Friðrik Friðriksson.
Í þessum þætti fáum við innsent hljóðbrot frá Gísla Helgasyni og Herdísi Hallvarðsdóttur úr gönguferð þeirra um Fossvoginn í apríl mánuði. Svavar Guðmundsson sendi inn upplestur úr bókinni sem hann skrifaði sem heitir „Þú ert snillingur“. Friðrik Friðriksson, Baldur Snær Sigurðsson og Hlynur Þór Agnarsson fóru á kjörstað utan kjörfundar og skoðuðu aðgengi fyrir forsetakosningarnar 2020.
01 Kynning.
02 Forsetakosningarnar 2020 - Friðrik Friðriksson, Baldur Snær Sigurðsson og Hlynur Þór Agnarsson
03 „Þú ert snillingur“ - Svavar Guðmundsson og Kolbrún Hjörleifsdóttir.
04 Göngutúr og Fossvogsdalinn - Gísli Helgasson og Herdís Hallvarðsdóttir.
05 Lokaorð
Athugasemdir eða hugmyndir um efni í næstu þætti má gjarnan senda á netfangið baldur@blind.is eða hafa samband í síma 525 0000.