Gerviaugað virkar fyrir Ron

Miðvikudaginn 4 mars var viðtal í BBC við einn af þeim blindu einstaklingum sem tekur þátt í tilraun með gerviauga, sem framleitt er af fyrirtækinu Second Sight®. Tengill inn grein þar sem tilraunin er kynnt.

Viðtalið við Ron virðist gefa tilefni til bjartsýni um að þessi nýja tækni geti  í framtíðinni orðið til þess að koma í veg fyrir  að sumir verði alblindir.  

Tengill inn á viðtal BBC við Ron.