Frábær árangur Eyþórs á Olympíumóti fatlaðra í Peking

Stimplar sig inn á meðal þeirra bestu

Eyþór sem keppir í flokki blindra synti á 5 mínútum og 11,54 sekúndum. Hann varð í 5.sæti í sínum riðli og í 8.sæti alls og komst í úrslitasundið sem fram fór rétt fyrir klukkan 11 í dag. Eyþór bætti persónulegt met sitt um rúmar 13 sekúndur.

Ástæða er til að óska Eyþóri Þrastarsyni til hamingju með þennan glæsilega árangur. Með þessu hefur Eyþór stimplað sig inn meðal þeirra bestu í heiminum, í sínum flokki í 400 metra skriðsundi. Eyþór hefur stórbætt sinn besta árangur frá því fyrir leikanna, og fram á meira er ekki hægt að fara. Vonandi verður þessi árangur til að hvetja hann enn frekar til dáða.