Dóra les vefsvæði Stjórnarráðs Íslands

Miðvikudaginn 30. janúar skrifaði forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, undir samning við Blindrafélagið um notkun Ivona veflesara Blindrafélagsins á allar vefsíður Stjórnarráðs Íslands. Það mun þýða að allir geta fengið allan íslenskan texta lesinn fyrir sig. Þetta er mjög mikilvægt í tilliti þess að jafna aðgegni að uppplýsingum fyrir þá mörg þúsund einstaklinga sem ekki geta lesið með hefðbundnum hætti, svo sem vegna blindu, sjónskerðingar, lesblindu eða sökum annarra fatlanna.

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, undirrita samninginnSamningurinnn er liður í því að hrinda í framkvæmd stefnumörkun Ríkisstjórnar Íslands frá 2012 um upplýsingaaðgengi. Veflesarinn gegnir því hlutverki að bjóða upplestur á íslensku á efni á vefsíðum verkkaupa. Hugbúnaðurinn sem notast er við kallast iWebReader og er frá Ivona, sjá nánar á www.iwebreader.com.

Við athöfnina óskaði forsætisráðherra öllum hlutaðeigandi til hamingju um leið og hún kvaðst afar ánægð með þennan mikilvæga áfanga í að bæta aðgengi þeirra að upplýsingum Stjórnarráðs Íslands, sem ekki gætu lesið með hefðbundum hætti.

Kristinn Halldór Einarsson formaður Blindrafélagsins kvað þennan áfanga vera mjög mikilvægan í upplýsingaðagegnismálum þeirra sem ekki gætu lesi með hefðbundnum hætti. Nýleg stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands væri í þessum efnum mjög mikilvæg og ánæglulegt væri hversu gott samstarf hafi náðs við starfsmenn Stjórnarráðs Íslands í að hrinda stefnumótuninni í framkvæmd.

Fréttatilkynning frá forsætisráðuneytinu er svohljóðandi:

"Forsætisráðuneytið hefur undirritað samning við Blindrafélagið –  samtök blindra og sjónskertra á Íslandi um að bjóða upplestur á íslensku efni á vefsíðum Stjórnarráðs Íslands með svonefndum veflesara.

Um er að ræða hugbúnað (IVONA  - iWebReader) sem bætir aðgegni blindra og sjónskertra að textuðu efni á vefjum allra ráðuneytanna. Veflesarinn nýtist einnig lesblindum og þeim sem kjósa að hlusta frekar en að lesa.
Samningurinn er gerður í samræmi við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar sem stuðlar að bættu aðgengi, m.a. blindra og sjónskertra, að því efni sem er að finna á opinberum vefjum. Stefnt er að því að allt efni verði aðgengilegt á mismunandi formi t.d. sem talmál eða tákn auk venjulegs texta. Í stefnunni er auk þess er kveðið á um aðrar ráðstafanir sem auðvelda aðgengi.

Með samningnum hefur forsætisráðuneytið f.h. Stjórnarráðs Íslands tryggt afnot allra ráðuneyta af veflesara sem þulið getur textað efni af vefsíðum stjórnarráðsins.

Samningurinn er gerður til eins árs en að þeim tíma liðnum verður hann endurskoðaður. Samningurinn kveður á um að ráðuneytin geti nýtt veflesarann á allt að 20 vefjum stjórnarráðsins samtímis. Auk ráðuneytanna má gera ráð fyrir að hann verði nýttur á vefjum á borð við starfatorg.is og kosning.is svo nokkuð sé nefnt.

Innanríkisráðuneytið hefur nýtt veflesarann í tilraunaskyni frá því í nóvember síðastliðnum. Í dag setti forsætisráðherra veflestur í gang á vef forsætisráðuneytisins og á næstu dögum verður einnig hægt að nýta sér veflesarann á öðrum ráðuneytisvefjum."