Dagskrá í tilefni af alþjóðlegum degi fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu

Félagið Fjóla – félag fólks með samþætta sjón og heyrnarskerðingu heldur upp á alþjóðlegan dag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu mánudaginn 27. júní 2011 í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá auk þess sem hægt verður að skoða hjálpartæki og kynna sér samskiptaleiðir. Veitingar verða í boði.

Dagskráin er eftirfarandi:

13:00  Opnun dagskrárinnar - Formaður Fjólu býður fólk velkomið.

13:05  Joel Snyder fjallar um hljóðtúlkun myndrænna fyrirbæra-  “Mini-workshop” on Audio Description (á ensku)

14:30  Kaffihlé

15:00  Félagsmaður Fjólu heldur erindi - lífssaga

15:15  Guðný K. Einarsdóttir ráðgjafi flytur erindi - Hvað er samþætt sjón og heyrnarskerðing?

15:30  Félagsmaður Fjólu heldur erindi - lífssaga

15:45  Júlía Hreinsdóttir fagstjóri á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra heldur erindi - Samskiptaleiðir

16:00  Skemmtiatriði

16:10  Ágústa Gunnarsdóttir stjórnarmaður Fjólu og Hanna Björg Sigurjónsdóttir lektor í fötlunarfræði halda erindi – Að stjórna eigin lífi og málum, valdefnling!

16:35  Skemmtiatriði

Fólk er hvatt til að mæta og kynna sér hvað samþætt sjón- og heyrnarskerðing er og halda upp á daginn með okkur.

Fjóla – félag fólks með samþætta sjón og heyrnarskerðingu stendur fyrir þessum degi í samstarfi við: Blindrafélagið, Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, Samskiptamiðstöð heyrnarskertra og heyrnarlausra, Félag heyrnarlausra, Heyrnarhjálp, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.