Aðalfundur Blindrafélagsins verður haldinn laugardaginn 19. mars 2016 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17. Fundurinn hefst kl. 13 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:
1. Halldór Sævar Guðbergsson, starfandi formaður félagsins, setur fund.
2. Kynning viðstaddra.
3. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
4. Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar.
5. Inntaka nýrra félaga.
6. Látinna aðalfélaga minnst.
7. Skýrslur lagðar fram:
a) Formaður flytur skýrslu stjórnar.
b) Umræður um skýrslur.
8. Ársreikningar félagsins og sjóða þess fyrir árið 2015 lagðir fram:
a) Löggiltur endurskoðandi Blindrafélagsins kynnir efnahags og rekstrarreikninga félagsins.
b) Umræður um ársreikningana.
c) Ársreikningur borinn upp til samþykktar.
9. Kosning formanns Blindrafélagsins til næstu tveggja ára.
10. Kosning tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn félagins til
næstu tveggja ára.
11. Kosning þriggja einstaklinga í kjörnefnd og einn til vara.
12. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og jafn margra
varamanna til tveggja ára.
13. Ákveðið árstillag félagsmanna fyrir næsta almanaksár og gjalddagi
þess.
14. Lagabreytingar.
15. Aðalfundur ákveði laun stjórnarmanna.
16. Önnur mál.
17. Fundarslit.
Léttar veitingar verða í boði að loknum aðalfundi.
Stjórn Blindrafélagsins