BYR fær aðgegnisvottun

 

Vefur BYRs hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu um að  vefurinn www.BYR.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Vefurinn hefur fengið vottun fyrir forgang 1 og 2. 

Forgangur 1 er lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi á vef. Forgangur 2 gerir meiri kröfur um aðgengi á vefnum. Síðan er einnig til forgangur 3, sem gerir miklar kröfur um aðgengi vefs Vottunin nær ekki til vefsíðna sem eru á erlendum tungumálum.