Þann 1 janúar 2018 tóku gildi gjaldskrárbreytingar hjá Strætó.Gjaldskrá verður hækkuð að meðaltali um 4,9%.
-
Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verður 460 kr. eftir breytingu.
-
Afsláttarfargjöld fyrir börn, aldraða og öryrkja verður 220 kr.
Þessar breytingar þýða að grunngjald í ferðaþjónustu Blindrafélagsins hækkar úr 440 kr í 460 kr.
Nánari upplýsingar um nýju gjaldskrána má finna hér.
Minnt er á að blindir og sjónskertir ferðast ókeypis með öllum leiðum Strætó nema leið 57.
Hvíti stafurinn, leiðsöguhundur eða félagsskírteini Blindrafélagsins staðfesta rétt viðkomandi. Sjá staðfestingu þar um hér.
Breytingar á leiðakerfi
Breytingar á leiðakerfi munu taka gildi þann 7.janúar. Helstu breytingar eru:
-
Leið 6 verður stytt og sett á 10 mínútna tíðni á annatímum. Sama fyrirkomulag hefur verið á leið 1 í rúmt ár og hefur það reynst mjög vel.
-
Þjónustutími verður lengdur á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 15 og 18 til klukkan 01:00 á kvöldin.
-
Sex leiðir munu sinna næturakstri úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugar- og sunnudaga. Leiðirnar munu aka á ca. klukkutíma fresti frá klukkan 01:00 til ca. 04:30.
-
Sumarið 2018 verður engin sérstök þjónustuskerðing yfir sumartímann eins og tíðkast hefur síðastliðin ár.