Víðsjá er kynningarrit Blindrafélagsins og er því ætlað að auka þekkingu á högum blindra og sjónskertra auk þess að veita innsýn í líf og starf félagsmanna. Viðsjá skipar lykilhlutverk í fjáröflunarmálum Blindrafélagsins en félagið þarf að afla 90% af tekjum sínum með eigin fjáröflunum til að standa undir nauðsynlegri starfsemi og þjónustu. Viðsjá kemur út tvisvar á ári, að vori og að hausti. Upplag blaðsins er 20.000 eintök. Þeim er dreift til félagsmanna, styrktarfélaga, bakhjarla og annarra sem stutt hafa félagið á síðastliðnum árum. Auk þess er blaðið sent til ýmissa félaga, fyrirtækja og opinberra aðila með áherslu á þá sem tengjast heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt könnun Capacent sem gerð var fyrir hönd Blindrafélagsins þá lásu það um 74% þeirra sem voru á póstlista Blindrafélagins sem gerir það að verkum að um 15 þúsund manns skoðuðu blaðið.
Af lesendum voru 82% ánægðir með efnistök blaðsins sem sýnir að ritsjórnarstefna blaðsins höfðar vel til markhópsins.
Í 75 ára afmælisblaði Blindrafélagsins má m.a. finna:
- Afmælisávarp frá Bergvini Oddssyni , nýjum formanni Blindrafélagsins.
- Viðtal við frú Vigdísi Finnbogadóttur, handhafa gullmerkis Blindrafélagsins.
- Ný könnun frá Capacent mælir almenna ánægju með Blindrafélagið og stöðu þess í samfélaginu.
- Um blinda og sjónskerta á vinnumarkaði.
- Íslenskir vísindamenn og fagfólk sækja ráðstefnu um hrörnunarsjúkdóma í sjónhimnu.
Tilgangur Víðsjár er að stuðla að sem viðtækustum skilningi og stuðningi, meðal félagsmanna og almennings á:
- Lífsgæðum og mannréttindum blinds og sjónskerts fólks á Íslandi.
- Nýjustu rannsóknum og meðferðartilraunum á sviði augnlækninga.
- Verkefnum sem eru á vettvangi Blindrafélagsins eða studd af félaginu og heimasíðu félagins, blind.is.
Stuðningur hins opinbera við starf Blindrafélagsins hefur dregist verulega saman á síðustu árum sem leiðir til þess að félagið þarf enn frekar að leita til almennings í landinu eftir stuðningi.
Nýjasta verkefni Blindrafélagsins er Vefvarp Blindrafélagsins en það er nettengd lestölva sem les upphátt í rauntíma skýringatexta í sjónvarpi, Morgunblaðið, bækur frá Hljóðbókasafni Íslands og margt fleira. Vefvarpið notar talgervilinn Karl og Dóru við upplesturinn. Ekki þarf neina tölvukunnáttu til að geta nýtt tækið. Þessi tækni hefur valdið straumhvörfum í upplýsingamiðlun til blindra og sjónskertra eldri borgara.
Á þessu ári eru 75 ár frá stofnun Blindrafélagsins. Í allan þann tíma hefur félagið barist af alefli fyrir réttindum blindra og sjónskertra og í dag er félagið í fararbroddi í jafnréttisbaráttu fatlaðra á Íslandi.