Andlát - Andrés Gestsson

 

Síðastiðinn föstudag lést Andrés Gestsson, félagi í Blindrafélaginu til margra áratuga. Útför Andrésar mun fara fram í kyrrþey að hans eigin ósk. Blindrafélagið mun hinsvegar bjóða fjölmörgum vinum og félögum Andrésar að kveðja Andrés við minningarathöfn sem haldin verður í salnum í Húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17. Minningarathöfnin mun fara fram miðvikudaginn 8 júlí kl 14:00.