Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ 4. september 2008
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum sínum yfir bágri fjárhagsstöðu fjölda öryrkja og sjúklinga vegna sívaxandi verðbólgu og hækkandi verðlags á nauðsynjavörum. Vaxandi hópi öryrkja reynist illmögulegt að láta enda ná saman vegna þessa.
Aðalstjórn ÖBÍ trúir því og treystir að í fjárlögum fyrir næsta ár verði að finna umtalsvert auknar fjárhæðir til handa þeim sem verst standa í íslensku samfélagi. Í þessu sambandi vill aðalstjórnin minna á, að á meðan lágmarkslaun hækkuðu um 18.000,- krónur í nýgerðum kjarasamningum, hækkaði lífeyrir almannatrygginga einungis um 7%. Það gerir 9.000,- króna hækkun ef einstaklingur hefur fulla greiðslu úr öllum fjórum bótaflokkum almannatrygginga, en lítill hluti öryrkja hefur slíkt.
Þær umbætur sem gerðar hafa verið á almannatryggingakerfinu á árinu eins og afnám tekjutengingar við maka, 100.000,- króna frítekjumark á mánuði á launatekjur, og 25.000,- króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur hefur komið ákveðnum hópi til góða, en það hefur ekki nýst öllum öryrkjum.
Í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks stendur að hlúa beri sérstaklega að þeim einstaklingum sem minnstar hafa tekjurnar í íslensku samfélagi. Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra boðaði framfærsluviðmið sem átti að koma 1. júlí síðastliðinn. Það hefur enn ekki litið dagsins ljós.
Hér með er skorað á stjórnvöld að bregðast við vanda þeirra sem verst eru settir og fyrirbyggja að til komi enn meiri fjárhagserfiðleikar fjölda einstaklinga og fjölskyldna þeirra.