Aðgengi í Windows 8

Eins og mörgum er kunnug þá hefur Microsoft sennt frá sér nýtt stýrikerfi sem á að leysa Windows 7 af hólmi og hið óvinsæla Windows Vista. Í ár rennur endanlega út öll ábyrgð á Windows XP og mun ekki vera haldið við af Microsoft svo það mun verða nauðsynlegt fyrir fleiri og fleiri sem hafa skýlt sér í örryggi XP kerfisins að koma úr felum og fjárfesta í Windows 7 eða 

Raunin er sú að það verður erfiðara og erfiðara að finna vélar á þokkalegu verði sem innihalda windows 7. Microsoft er mjög öflugt í markaðsetningu nýrra afurða og eitt af þeim leiðum sem þeir fara er að þvinga notandan til þess að skipta yfir. Þeir hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir þetta framferði en engu að síður er raunin sú að almenningur sem vill nota pc tölvu með Microsoft stýrikerfi í dag fær ekki að sleppa við Windows 8.

Þetta er underleg markaðsaðferð og margt hægt að segja um það sérstaklega í ljósi þess að Windows 7 kerfið vakti mikla lukku og hefur reynst mjög vel og mörgum þykir því ótímabært að skipta.

Aðgengi í Windows 8 er soldið eins og færeyskur dansur; eitt skref til vinstri og tvö til hægri. Windows 8 er hannað með snertiskjái í huga en sá búnaður er hinsvegar en sem komið er ekki alveg á allra færi. Það er hægt að fá spjaldtölvur með Windows 8 og svo hefur Microsoft sett Surface vélina sína á markað sem er einhverskonar millistig á milli spjaldtölvu og fartölvu og líka með snertiskjá. Þetta eru hinsvegar ekki mjög stórir skjáir og sú ágæta stækkun sem fylgir Windows 8 nýtur sínn ekki til fullnustu. Stækkunin, sem er svipuð og Ipadstaækkun, þar sem þú notar puttana til þess að stækka skjámyndina og færa hana til og frá, nýtur sínn mjög vel á stórum snertiskjá og tölvu eins og þeirri sem blindrafélagið er me í tölvuveri sínu. Enn þær eru heldur ekki ókeypis og eru þá orðnar jafn dýrar og iMac tölvurnar sem margir sjónskertir myndu þá kannski frekar vilja nota.

Nýtt er að  nú er hægt að nota öfuga liti og Windows Magnifier sem virkar nú svipað og Zoom Text, ekki alveg sömu gæði en ótrúleg framför miðað við fyrri útgáfur. Nú ætti því að vera hægt að vinna á Windows 8 án sérforrita fyrir fólk með talsverða sjónskerðingu/stækkunarþörf.

En talið haltrar enn, bógstaflega, hinn innbyggði Windows Narrator ræður illa við flóknar valmyndir og þann hraða sem vélin bíður upp á. Hann höktir endalaust og gerir manni ekki auðveldlega kleift að ferðast á milli forrita og framkvæma aðgerðir sjónlaust. Nvda, open source hugbúnaður sem hefur þróast mikið seinnustu ár og er orðin samkepnishæfur við t.d. JAWS höktir einnig á Windows 8 og virðist heldur ekki ráða við viðmótið.

Þannig að: á meðan við bíðum eftir uppfærslum frá þeim forritum sem við þekkjum og elskum, svo þau geti leitt okkur sjónlaus gegnum þetta nýja stýrikerfi þá er það ekki aðgengilegt blindum.  Það bíður hinsvegar upp á nýja möguleika fyirir sjónskerta hvað varðar innbyggða stækkun og með ódýrrari snertiskjálausnum verður það virkilega spennandi að fylgjast með þeim málum í framtíðinni.

Fyrir þá sem vilja kynna sér meira um Windows 8 er hægt að hafa samband við mig og bóka tíma í tölvuverinu. En ég hvet líka fólk til að fara í tölvubúðir og fá skoða græjurnar þar og sjá hvort þær geti hentað þörfum manns.

Með tilkomu spjaldtölvunar  og snjallsíma eru komnir svo margir möguleikar fyir þá sem nota tölvur í annað en ritvinnslu og um að gera að kynna sér allar þessar skemmtilegu lausnir og finna þá sem hentar manni allra best. Þá má líka taka tillit til  hvernig þetta „lúúkar“ og hvort það passi við manns persónulega stíl. En verið endilega ófeimin við að hafa samband við mig ef þið eruð í vafa með eitthvað.

Rósa María Hjörvar

rosa@midstod.is