Opið hús

Blindrafélagið hefur Opið hús alla þriðjudaga og fimmtudaga í sal félagsins í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Allir félagar eru hjartanlega velkomnir í opið hús, og sjálfsagt að taka með sér vin eða vandamenn. Opnu húsin hefjast kl. 13:00.

Þriðjudaginn 22. október býður Bókmenntaklúbburinn öllum félagsmönnum í tuttugu ára afmæli sem haldið verður í opnu húsi.
 
Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur kemur og segir frá nýjustu skáldsögu sinni, sem kallast Mikilvægt rusl. Hann mun lesa upp úr bókinni, veita innsýn í sköpunarferli hennar og segja skemmtilegar, sannar sögur sem rötuðu á síður bókarinnar.“
 
Boðið verður uppá ljúffengar kaffiveitingar í tilefni af afmælinu. Vonumst til að sjá sem flesta.

Opið hús er sent út í beinni útsendingu í Vefvarpinu fyrir þá sem eru á landsbyggðinni eða sjá sér ekki fært að mæta í húsið. Hægt er að hlusta í Vefvarpinu undir liðnum "Efni frá Blindrafélaginu" og "Bein útsending úr sal félagsins". Einnig er hægt að hlusta á eldri Opin hús undir liðnum "Efni frá Blindrafélaginu", "Opið hús, Viðburðir og ýmislegt annað efni".