Ungblind er vettvangur unga fólksins í Blindrafélaginu. Meginhlutverk Ungblind er fræðsla, félagsstarf, skemmtanir og jafningjastuðningur fyrir félagsmenn en Ungblind er ætluð blindum og sjónskertum einstaklingum á aldrinum 16-30 ára.
Ungblind stendur fyrir margs konar uppákomum, svo sem veitingahúsaferðum, innanhússskemmtunum og fræðslu af ýmsu tagi. Ungblind tekur þátt í erlendum samstarfsverkefnum, t.d. norrænum sumarbúðum blindra og sjónskertra ungmenna.
Hægt er að hafa samband við Ungblind með að senda póst á netfangið ungblind@blind.is.
Facebook hópur UngblindarInstagram Ungblindar