Opið hús

Opið hús.

Blindrafélagið hefur Opið hús alla þriðjudaga og fimmtudaga í sal félagsins í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Allir félagar eru hjartanlega velkomnir í opið hús, og sjálfsagt að taka með sér vin eða vandamenn. Opnu húsin hefjast kl. 13:00.

Þriðjudaginn 15. október verður Unnar Þór Reynisson umsjónarmaður. Hann fær til sín Jón Gnarr sem mun fjalla um Völuspá.

Jón Gnarr ætti að vera öllum kunnur. Hann var borgarstjóri í Reykjavík, bauð sig fram til forseta Íslands, en helst er hann þó þekktur fyrir að vera grínisti og leikari. Jón notaði Völuspá sem lokaverkefni sitt í Listaháskóla Íslands.

Hér er hægt að hlusta á kynningu frá Jóni.
 
Opið hús er sent út í beinni útsendingu í Vefvarpinu fyrir þá sem eru á landsbyggðinni eða sjá sér ekki fært að mæta í húsið. Hægt er að hlusta í Vefvarpinu undir liðnum "Efni frá Blindrafélaginu" og "Bein útsending úr sal félagsins". Einnig er hægt að hlusta á eldri Opin hús undir liðnum "Efni frá Blindrafélaginu", "Opið hús, Viðburðir og ýmislegt annað efni".