Jóla Opið hús, 14. desember.
Jóla Opið hús verður haldið laugardaginn 14. desember. Húsið opnar kl 10.30 og dagskrá hefst kl 11.00. Gestir í Opnu húsi að þessu sinni verða Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur og skáld, ásamt hljómsveitinni Baggalúti.
Elísabet ætlar að vera með jólahugvekju og lesa ljóð. Kl 12:00 verður borið fram kalt hangikjöt með öllu tilheyrandi meðlæti og kostar máltíðin kr. 3500 á mann.
Að loknum hádegisverði mætir hljómsveitin Baggalútur. Þeir munu sjá til þess að koma öllum í jólaskap sem ætti að endast fram yfir þrettándann.
Skráning er hafin á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525-0000 eða í gegnum netfangið afgreidsla@blind.is.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 12. desember.
Mætum nú sem flest og undirbúum jólin með því að hlýða á Elísabetu Jökulsdóttur og njóta jólatónlistar að hætti Baggalútanna.
Kær kveðja
Steinunn Helgu