Forsíðuviðtalið í blaðinu er að þessu sinni við Hörpu Völundardóttur og er yfirskrift þess: „Sykursýki er dauðans alvara“. Fjallaðer frekar um sykursýki sem sjúkdóm 21. aldarinnar. M.a. þá staðreynd að sykursýki getur leitt til alvarlegra augnvandamála. Sumireru þegar við greiningu komnir með skemmdir í augnbotna.
Í forustugreininni fjallar formaður Blindrafélagsins, Kristinn Halldór Einarsson, um hvort að tiltekin sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sé ber af því að vísa frá sér fötluðum íbúum með þjónustuleysi.
Heilsumatur fyrir sjónina eru að þessu sinni fiskiuppskriftir sem henta sykursjúkum.
Fjallað er ítarlega um þá þjónustu sem stendur eldri borgurum sem missa sjónina til boða, en 73% þeirra sem eru skráðir blindir og sjónskertir á Íslandi eru eldri en 67 ára
"Stuðningur til sjálfstæðis" er nýr styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins sem ætlað er að styðja við fjölþætta starfsemi sem er hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.
Hjálpartæki til gagns og gamans í sérvöruverslun Blindrafélagsins eru kynnt og gerð er grein fyrir nýja leiðsöguhundadagatali Blindrafélagsins sem er nýkomið út.
Gerð er grein fyrir rannsóknarverkefni sem fjallar um sjónskertar mæður og unnið var af Karen Friðriksdótturí Svíþjóð.
Æskulýðsfulltrúi Blindrafélagsins skrifar pistil um að þróa skýra sýn og ótruflaðan huga.
Blaðið er sent til allra velunnara Blindrafélagsins, en þeir eru yfir 22 þúsund talsins.