Úrdrætti í happadrætti Blindrafélagsins frestað til 19. júní

Vegna verkfalla BHM þá varð að fresta úrdrætti í happadrætti Blindrafélagsins sem vera átti 12. júní.  Sýslumannsembættið á Suðurlandi heimilaði frestun um eina viku, eða til föstudagsins 19 júní.  Vinningsskrár verða því birtar í vikunni 22. - 27. júní.