Sumarskóli um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks dagana 19. - 23. júní 2017 á Írlandi.

ÖBÍ hvetur félagsmenn aðildarfélaganna til að sækja um styrk til ferðarinnar. Í umsókn skal koma fram fullt nafn, kennitala, aðildarfélag umsækjanda og stuttur rökstuðningur fyrir umsókn um styrkveitingu. Þeir sem hljóta styrk þurfa að vera Öryrkjabandalaginu innan handar við kynningu á samningnum síðar. Hver umsókn verður skoðuð með tilliti til ofangreindra þátta.

Umsóknir skulu berast á meðfylgjandi eyðublaði í síðasta lagi 15. mars næstkomandi til móttöku ÖBÍ á netfangið mottaka@obi.isNánari upplýsingar veitir Þórný Björk Jakobsdóttir á skrifstofu ÖBÍ á netfanginu thorny@obi.is

 og í síma 530 6700.


Fylgiskjöl:
Sumarskólaauglýsing 2017
Eyðublað
Viðmið um val á umsækjendum um styrk í sumarskóla um SRFF í Galway