Samræðufundir með frambjóðendum til sveitastjórnarkosninga 2014

Blindrafélagið, í samvinnu við Landsamtökin Þroskahjálp og Sjálfsbjörgu landssamband fatlaðra, eru að fara af stað með fundarferð í völdum sveitarfélögum til að hitta frambjóðendur og kynna fyrir þeim og íbúum á svæðunum markmið í þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélögum landsins. Undirbúningur stendur enn yfir þar sem ekki eru enn komnar allar upplýsingar um endanleg framboð. Við munum uppfæra upplýsingar jafnóðum og þær koma og hvetjum alla til að fylgjast með og mæta á fundina.

Hugmynd að dagskrá:

  • Kynning á niðurstöðum skoðanakönnunar og dreifing á efni.
  • Kynning á sameiginlegri stefnuskrá félaganna
  • Hringborðs umræður með frambjóðendum

Drög að fundarröð

  • Miðvkudagurinn 14. maí kl 17;00   Ísafjörður, Edinborgarhúsið, Ísafirði.
  • Fimmtudagurinn 15. maí kl. 20:00  Akranes, Gamla Kaupfélagið, Akranesi.
  • Mánudagur 19. maí kl. 17:00 Reykjanesbær 
  • Mánudagur 19. maí kl. 20:00 Mosfellsbær, Hamrahlíð 17, Reykjavík
  • Þriðjudagur 20. maí kl. 17:00 Garðabær, Hamrahlíð 17, Reykjavík
  • Þriðjudagur 20. maí kl. 20:00 Kópavour, Hamrahlíð 17, Reykjavík 
  • Miðvikudagur 21. maí kl. 17:00 Hafnarfjörður, Hamrahlíð 17,, Reykjavík
  • Miðvikudagur 21. maí kl. 20:00 Reykjavík, Hamrahlíð 17, Reykjavík.
  • Fimmtudagur 22. maí kl. 20:00 Árborg, Tryggvaskála, Selfossi.
  • Laugardagur 24. maí kl. 13:30 Fjarðarbyggð, Félagslundi, Reyðarfirði.