Gott gengi Hlyns

Söngvakeppninni Lions World Song Festival for the Blind var haldin í annað sinn 12-14.nóvember í Kraków, Póllandi. Hlynur hlaut ekki einungis annað sætið heldur fékk hann sérstök heiðursverðlaun forseta pólsku ferðamálasamtakanna.


Keppnin er haldin fyrir söngvara með sjónskerðingu sem eru ekki nú þegar atvinnutónlistarmenn. Hátíðin er hugsuð til þess að þessir söngvarar geti vakið athygli á sjálfum sér og þannig hafið tónlistarferil sinn.