Eyþór og Sonja valin best

Sundmennirnir Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir voru í dag útnefnd íþróttamenn ársins úr röðum fatlaðra. Hvort um sig náðu þau góðum árangri innanlands sem utan. Eyþór vann meðal annars til silfurverðlauna á Evrópumeistaramótinu í sundi sem haldið var hér á landi í haust. Þetta er annað árið í röð sem þau Eyþór og Sonja hljóta þennan heiður. Tekið af ruv.is