Stjórn Blindrafélagsins hefur ákveðið að setja á fót hjálpartækjaleigu. Tilgangurinn er að bjóða skólum og vinnustöðum upp á þann möguleika að leiga dýr hjálpartæki fyrir sjónskerta nemendur og starfsmenn.
Mörg þeirra hjálpartækja sem sjónskertir nemendur og starfsmenn þurfa á að halda til að geta stundað nám eða starf eru dýr í innkaupum, en aðgengi að hjálpartækjum getur skipt sköpum varðandi nám eða atvinnuþátttöku sjónskertra.
Núgildandi fyrirkomulag gerir í aðal atriðum ráð fyrri því að skólar og vinnustaðir kaupi þau hjálpartæki sem þörf er á. Sú staða getur hæglega komið upp eftir að nemandi hefur lokið námi, eða starfsmaður hætt störfum, að skólar eða vinnustaðir sitji uppi með dýr hjálpartæki án þess að þau komi að nokkru gagni. Slíkt leiðir til verðmætasóunar.
Hjálpartækjaleigu Blindrafélagsins er ætlað að auðvelda bæði skólum og vinnustöðum að láta sjónskertum nemendum sínum og starfsmönnum í té þau hjálpatæki sem þeim eru nauðsynleg til að geta stundað nám eða sinnt starfi.
Fyrirkomulagið mun verða með þeim hætti að byrjað verður á að skilgreina og velja tækið sem í hlut á og leigusamningur síðan gerður til a.m.k. eins árs. Því næst verður tækið flutt til landsins og afhent leigutaka. Við ákvörðun leigugjalds verði við það miðað að tækið borgi sig upp á 3 - 5 árum, allt eftir eðli, uppfærslutíðni og notagildi tækjanna.
Leigugjald verður innheimt mánaðarlega.