Alþjóðlegur sjónverndardagur 13. október

Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er annar fimmtudagur í október ár hvert. Tilgangurinn dagsins er að beina athygli almennings út um allan heim að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi.Dagurinn er jafnframt nýttur til að vekja athygli á alheimsátaki Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í baráttunni gegn blindu. Verkefnið nefnist:: „Sýn 2020: Réttur til sjónar“ („Vision 2020: Right to sight“).

Samkvæmt tölum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) eru 285 milljónir manns blindir eða sjónskertir (65% 50 ára eða eldri). Af þessum fjölda eru 246 milljónir sjónskertir (63% eldri en 50 ára) og 39 milljónir eru blindir (82% 50 ára eða eldri).

15 október ár hvert er dagur Hvíta stafsins, dagur sem ætlaður er til að vekja athygli á hagsmunamálum blindra og sjónskertra einstaklinga.

Ísland

Á Íslandi eru um 1500 einstaklingur á skrá hjá Þjónustu og þekkingarmiðstöðinni fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Af þeim eru 7% á aldrinum 0 til 18 ára, 20% eru á aldrinum 19 – 66 ára og 73% eru á aldrinum 67 ára og eldri.

Helstu orsakir blindu og sjónskerðingar hér á landi eru: AMD eða ellihrörnun í augnbornum, RP (Retinitis Pigmentosa) sem er arfgengur hrörnunarsjúkdómur í sjónhimnu og Gláka sem er sjóntaugarsjúkdómur.

Ellihrörnun í augnbotnum

Af þeim sem eru sjónskertir hér á landi eru 57% með ellihrörnun í augnbotnum (AMD). Algengi sjúkdómsins eykst með hækkandi aldri. AMD þróast hægt í byrjun en getur í sumum tilvikum breyst snögglega til hins verra og krafist meðhöndlunar strax.   

RP

Retinitis Pigmentosa eða RP er samheiti yfir vissa meðfædda hrörnunarsjúkdóma í sjónhimnu augans. Þetta eru alvarlegir sjúkdómar þar sem þeir herja á ungt fólk og leiða í sumum tilvikum til alblindu. Með þennan sjúkdóm eru um 6% allra blindra og sjónskertra. Algengasta byrjunar einkenni RP er náttblinda.

Gláka

Gláka er safn sjúkdóma sem einkennast af minnkandi sjón og blindu ef ekkert er að gert. Hún er þriðja algengasta orsök blindu og sjónskerðingar meðal Íslendinga í dag, 4% allra sjónskertra. Gláka orsakast af skemmdum í sjóntaug, sem smám saman veldur þrengingu á sjónsviði viðkomandi og getur sjónin orðið lík því að horft sé í gegnum rör. Ef ekkert er að gert versnar líka miðjusjón og einstaklingurinn getur orðið blindur.

Aðrar orsakir

Meðal annarra orsaka fyrir blindu og sjónskerðingu má nefna sykursýki, en þeim tilfellum fer fjölgandi, sýkingar, slys og tilfelli þar sem einstaklingar fæðast án sjónar.

SÝN - Í tilefni af Alþjóðlegum sjónverndardegi og degi Hvíta stafsins

Í tilefni af alþjóðlega sjónverndardeginum gefa Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin fyrir blinda, sjónskerta og  daufblinda einstaklinga, út 8 síðna fræðslublað sem fengið hefur nafnið SÝN, og dreift er með Fréttablaðinu. Í blaðinu er starfsemi útgefenda kynnt, fjallað um augnsjúkdóma og sjónvernd, leiðsöguhunda, aðgengismál og Blindravinnustofuna sem er 70 ára um þessar mundir.

Tengil inn á blaðið á pdf formi.

Fyrirlestur um gláku og glákuvarnir í tilefni af Alþjóðlegum sjónverndardegi

Fimmtudaginn 13. október kl 17:00, á alþjóðlegum sjónverndardegi, verður Guðmundur Viggósson augnlæknir með fyrirlestur um gláku og glákuvarnir í fundarsalnum í Húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17. Guðmundur mun meðal annars fjalla um góðan árangur sem náðst hefur í glákuvörnum hér á landi. Víðast í löndunum í kringum okkur er gláka önnur algengasta orsök blindu og sjónskerðingar en hér á landi er hún í þriðja sæti. Fyrirlesturinn er í boði Blindrafélagsins, Lions á Íslandi og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. 

Dagur Hvíta stafsins – laugardaginn 15. október

Í tilefni af degi HVÍTA STAFSINS, laugardaginn 15. október næstkomandi, verður opið hús í Hamrahlíð 17, í Húsi Blindrafélagsins. Húsið verður opið almenningi milli kl. 14:00 og 16:00. Meðal viðburða er að forseti Íslands mun afhenda Samfélagslampa Blindrafélagsins, sem nú verður afhentur í þriðja sinn. Í þetta sinn er lampinn veitur Lions á Íslandi fyrir öflugan stuðning við leiðsöguhunda- og talgervlaverkefni Blindrafélagsins.

Gestum mun gefast kostur á að kynnast þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í húsinu. Má þar nefna: Hjálpartækjaverslun Blindrafélagsins, starfsemi Blindravinnustofunnar, starfsemi Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, endurhæfingaríbúð fyrir blinda og sjónskerta, starfsemi sprotafyrirtækisins Oxymap, starfsemi Augnlækna Reykjavíkur, starfsemi Nuddstofu Óla og starfsemi sjóntækjafræðinganna í Optic Reykjavík. Einnig verða til sýnis og skemmtunar leiðsöguhundar fyrir blinda, hvolpar sem hafa verið valdir til að verða leiðsöguhundar og leitarhundar frá lögreglunni og hjálparsveitunum.

Boðið verður upp á kaffiveitingar og eru allir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir.