Sumarhátíð Blindrafélagsins og sjóðsins Blind börn á Íslandi

Þann 10. ágúst næst komandi mun Blindrafélagið ásamt sjóðnum Blind börn á Íslandi halda sumarhátíð í garðinum okkar að Hamrahlíð 17 og byrja herlegheitin kl. 14:00.

Við grillum pulsur, hoppukastali verður á staðnum ásamt alls kyns leiktækjum.
Þetta er klárlega skemmtilegasti dagur ársins svo það er um að gera að mæta og skemmta okkur saman.

Til þess að hægt sé að áætla veitingar þarf að skrá sig á viðburðinn í síma 525 0000 eða senda póst á afgreidsla@blind.is. Skráningu líkur kl. 16:00 8. ágúst nk.

Allir velkomnir, takið systkini, vini, ömmur og afa með!