Lögð er áhersla á að kenna gagnleg grunnatriði sem nýtast við tölvunotkun heima og í vinnu. Lögð er áhersla á gagnleg atriði varðandi tölvuna, Windows stýrikerfið og Internetið. Kennt verður á Facebook, Skype, Hljóðbókasafnið, vefpóst, senda viðhengi og myndir. Námskeiðið aðlagar sig að þeim hópi sem er hverju sinni.
Þátttakendur verða að koma með sínar eigin tölvur.
Námskeiðið verður haldið í Hamrahlíð 17 dagana:
Þriðjudaginn 3.október kl 17-19
Fimmtudaginn 5.október kl 17-19
Þriðjudaginn 10.október kl 17-19
Fimmtudaginn 12.október kl 17-19
Verð 5.000 krónur sem greiðast við skráningu..
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Leiðbeinandi: Steinar Björgvinsson
Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða á blind@blind.is