Styrkir úr sjóðnum Stuðningur til sjálfstæðis.

Styrkir úr sjóðnum Stuðningur til sjálfstæðis.

Stuðningur til sjálfstæðis - styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi, tekur á móti umsóknum fram til 1. október vegna styrkja fyrir seinni hluta 2024.

Veittir eru styrkir í 4 styrkjaflokkum, A, B, C og D:
A) Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.
B) Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.
C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.
D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.

Smelltu hér til að lesa nánar um skipulagsskrá, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar um sjóðinn.

Smelltu hér til að fylla út styrkumsókn.