Sjóðurinn Blind börn á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrki

Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á Sumardaginn fyrsta næstkomandi sem er 25.apríl 2013. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 22. apríl 2013.
 

Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið klara@blind.is  Umsóknir  skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um.