Sjóðurinn Blind börn á Íslandi

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri.  Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum,  Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra,  félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna

Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á Fyrsta vetrardag næstkomandi sem er  23.október 2010.  Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 18.október 2010

Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið klara@blind.is  Umsóknir  skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Meginmál