Nýr framkvæmdastjóri Blindravinnustofunnar ráðinn

Stjórn Blindravinnustofunnar hefur ráðið Björn Hermannsson sem  framkvæmdastjóra  Blindravinnustofunnar frá og með 1 janúar 2010. Björn er 54 ára gamall og búsettur í Kópavogi. Björn er þekktastur fyrir að hafa verið framkvæmdastjóri Landsbjargar í um 15 ár. Björn er boðinn velkominn til starfa. Starfið var auglýst laust til umsóknar í desember síðast liðnum og sóttu 44 um.