Jólakort Blindrafélagsins 2014

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa jólakort félagsins, tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

    

Jólakortin og merkispjöldin eru með myndinni „Glitur“ eftir listamanninn Helenu Reynis.

 

  • Jólakortin eru seld átta saman í pakka ásamt umslögum á 1.600 kr.

     Í hverjum pakka eru fjögur rauð kort og fjögur fjólublá.

 

  • Merkispjöldin eru átta saman í pakka og eru seld á 600 kr.

    Í hverjum pakka eru fjögur rauð spjöld og fjögur fjólublá.

 

Hægt er að kaupa kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík,

sími 525 0000, versla í vefverslun okkar á www.blind.is eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is.

 

Blindrafélagið hvetur alla velunnara sína að styðja félagið með kaupum á þessum fallegu jólakortum og merkispjöldum.