Er leiðin greið? 

Aðgengishópur Öryrkjabandalags Íslands, Blindrafélagið, Verkís hf., Átak- félag fólks með þroskahömlun og Reykjavíkurborg bjóða til málþings um algilda hönnun utandyra, í þéttbýli og á ferðamannastöðum.

Málþingið er haldið í samvinnu við Umhverfisráðuneytið, Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðina.
 
Tími: föstudagurinn 10. mars, kl. 9:00-13:00
Staður: Grand hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Skráning: www.obi.is fyrir 3. mars
.
Dagskrá málþingsins
 
Málþingið er haldið í tengslum við alþjóðlegan dag aðgengis sem er 11. mars. Fjallað verður um aðgengismál innan byggðar og á ferðamannastöðum.
Kynnt verður ný rannsóknarskýrsla sem unnin var af verkfræðistofunni Verkís, en tilgangur verkefnisins var að gera ítarlega úttekt á hönnunarreglum og stöðlum sem lúta að algildri hönnun í útiumhverfi í Svíþjóð, Danmörku og Noregi og bera saman við íslenskar reglur og staðla.
 
Brugðið verður ljósi á aðgengisþarfir fatlaðs fólks í almenningsrými innan byggðar og af hverju algild hönnun er mikilvæg við skipulagningu gatna og torga. Kynntur verður leiðbeiningarbæklingur sem aðgengishópur ÖBÍ gefur út á málþinginu.
 
Gerð verður grein fyrir stöðu aðgengismála á ferðamannastöðum á Íslandi. Sagt verður frá niðurstöðum úr ferð aðgengishóps Átaks – félags fólks með þroskahömlun, sem birtar voru í nýlegri skýrslu.
 
Veitt verður aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar í fyrsta sinn.
 
Fulltrúar frá Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðinni halda erindi á málþinginu og Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra flytur ávarp.
 
Málþingið er ókeypis og öllum opið. Boðið verður upp á veitingar í hádeginu.
 
Rit- og táknmálstúlkun er í boði – óska þarf eftir túlkun við skráningu á málþingið.

Blindrafélagið hvetur félagsmenn sína til að skrá sig.

Dagskrá málþingsins:

9:00. Málþingið sett.
9:10. Ávarp. Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
9:20. Hönnun í útiumhverfi – úttekt og samanburður á norrænum hönnunarreglum. Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og Berglind Hallgrímsdóttir, umferðarverkfræðingur hjá Verkís.
10:00. Er leiðin greið? Erna Hreinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
10:15. Aðgengi fyrir alla utandyra. Grétar Pétur Geirsson, formaður málefnahóps ÖBÍ um aðgengi. 10:40 Byggingarreglugerðir og algild hönnun. Aldís Magnea Norðfjörð, arkitekt hjá Mannvirkjastofnun.
10:55. Kaffihlé.
11:20. Upplifun fatlaðs fólks af ferðamannastöðum á Íslandi. Aileen S. Svensdóttir, formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun og Anna Kristín Jensdóttir.
11:50. Aðgengi að ferðamannastöðum – aðkoma Ferðamálastofu. Elías Bj. Gíslason, Ferðamálastofu. 12:05. Afhending aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2017.
12:35. Lokaávarp.
13:00. Málþingi slitið og boðið er upp á léttar veitingar. 


Kynningarefni á word sniði.
Kynningarefni á pdf sniði.