Dagatal Blindrafélagsins 2016

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2016 með myndum af hinum ýmsu leiðsöguhundum. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðasöguhunda fyrir blinda einstaklinga.

Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað mikilvægi sitt. Dagatalið er sent heim til allra velunnara félagsins auk þess er hægt að fá dagatalið keypt hjá Blindrafélaginu.

Á Íslandi eru einungis starfandi sex leiðsöguhundar fyrir blinda fyrir tilstuðlan Blindrafélagsins og er þörf fyrir mun fleiri. Þjálfun leiðsöguhunds fyrir blindan einstakling er mjög sérhæfð og tímafrek.

Hver leiðsöguhundur getur unnið á bilinu 8-10 ár og allan þann tíma, á hverjum einasta degi, bætir hundurinn lífsgæði notanda síns umtalsvert.

Dagatalið er með myndum af hinum ýmsu leiðsöguhundum þar á meðal Sebastian sem er fyrsti leiðsöguhundurinn sem er fæddur og þjálfaður að öllu leiti á Íslandi. Sebastian hefur verið starfandi sem fullgildur leiðsöguhundur á Patreksfirði frá upphafi árs 2013.

 Á bakhliðunum í ár er síðan fallegt verkefni sem JCI Iceland stóð fyrir, í samstarfi við Blindrafélagið, sem heitir Blindir sjá en það var ljósmyndakeppni fyrir blinda og sjónskerta sem fór fram í sumar.

Hægt er að kaupa dagatalið í vefverslun Blindrafélagsins (www.blind.is) og í síma 525 0000. 

Dagatalið kostar 2.300 krónur.