Stjórn Blindrafélagsins boðar til aðalfundar félagsins. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 15. maí 2021 á stafrænanhátt á forritinu Zoom og hefst hann kl. 13:00.
Athygli er vakin á því að réttur til setu á aðalfundi, og þar með talið kjörgengi, fellur niður ef félagsgjöld eru ógreidd.
Tilkynning um framboð til stjórnar Blindrafélagsins.
Á aðalfundi Blindrafélagsins þann 15. maí næstkomandi verður kosið í stöður tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn Blindrafélagsins og ræður atkvæðafjöldi því hverjir taka sæti sem aðalmenn og varamenn.
Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:
Guðmundur Rafn Bjarnason.
Halldór Sævar Guðbergsson.
Kaisu Kukka-Maaria Hynninen.
Rósa Ragnarsdóttir.
Allir þessir frambjóðendur hafa verið úrskurðaðir kjörgengir samkvæmt lögum félagsins af kjörnefnd.
Hægt er að lesa nánar um aðalfundi félagsins í lögum Blindrafélagsins (8., 9. og 10. gr.).
Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Kristinn Halldór Einarsson.
Framkvæmdastjóri.